Wednesday, November 24, 2004
jjjjjjjj


Posted at 06:59 pm by Þóra Geirlaug
speak up bitches!  

Saturday, November 13, 2004
Gleði, GLeði, eða hvað

Gleði, gleði, gleði, gleði líf mitt....  var semsagt að koma af Gospel násmkeiði með Tinnsternum.Það var bara óheyrilega gaman og ágætis mótvægi við gærkvöldið. Lið FVA, skipaað mér, Mána, SLaugu sambýliskonu og Sigurði sveitadreng, fó fíleflt, og þrautæft suður til að etja kappi við Borghyltinga. Umræðuefnið var semsagt Mistök og vorum við með (við vorum að keppa í morfís) Við geðum allt eins vel og við gátum, miðað við reynslu, og skiluðum okkar bara að mínu mati frekar vel. En Dómara greyin voru víst ekki alveg á sama máli, því þurftum við að hundast aftur heim með 70 stiga tap á bakinu. Hinsvegar er mér það gjörsamlega hulin ráðgáta hvernig þetta var hægt, ég hef það eftir áreyðanlegum heimildum að önnur ræða Jóns Bjarka hafi verið ískyggilega lík gömlæum ræðum úr úrslitakepnum Morfís síðustu tveggja ára. Hvað er málið með það!  Hann var góður ræðumaður, hann má eiga það. En að mínu mati er það ekki nóg að vera með ienn góðann ræðumann og svo mann sem kann ekki að tala í míkrafón, var með lélega ræðu og svo stúlkukind sem að var mér bara hreint ekki að skapi. Satt best að segja var ræðustíllinn hennar nákvæmlega eins og mér var tjáð að ætti EKKI að gera. En, það þýðir víst ekki að gráta Björn bónda, heldur safna liði. Krakkarnir sem voru í liðinu okkar voru snilld, algjört brill að vinna með þeim, svo ekki sé minnst á þjálfarann okkar, Byssuna (aka Ingvar verzlingur, sem kallaði mig gálu í fyrra). Ótrúlegt  í rauninni hvað var hægt að gera úr okkur! Skemmtilegur karakter sem er eiginlega búið að ráða til að stjórna hvatningarópum okkar Vestlendinga í framtíðinni. ALgjört brill. En, nú er stefnan bara sett á prófin þannig að ef einvher hefur EITTHVAÐ sem hann/hún þarf að spyrja mig um, viljiði þá vinsamlegast bíða með það þar til einvhern tíman í janúar þar sem jólafríið verður teki í FRÍ frá ábyrgðarstöðum og því að vera fyrir mynd annarra. Svekk svekk
yfir og út

Posted at 07:36 pm by Þóra Geirlaug
núnú, bara partý(5)  

Monday, November 08, 2004
gefumst ekki uppp þó móti blási....

jámm, þetta verður stutt og laggott, þabarra allt að verra kreisí *pirrandi gelgjurödd* morfís á föstudaginn, Byssan úr Versló kominn til að gera ræðusnillinga úr okkur..... sjáum hvernig það fer. Amk er það föstudagurinn 12. uppí Borgarholtsskóla, umræðuefnið er mistök, fva með. en, skolinn er að kæfa mann hérna, þýskupróf eftir alltof stuttan tíma, efnafræðipróf eftir hádegið, skoðun fyrir bílinn klukkan þrjú (búin í prófi 15:20) og svo eru verkefni, heimadæmi, ritgerðir og reikningsdjöflar sem þarf að borga. sé reyndar fram á það að eftir fjögur í dag verði mögleiki á að borga slatta af reikningum ef að samúel engill leguur inná okkur þeas. það tekur ábyggilega um hálftíma, þá kl 1700 mun vera morfís æfing og Þóra Geirlaug búin að vera með ritstíflu síðan hún fór að ryena að skrifa ræðu í gær. hef reyndar ekki hugmynd um hvað æfingin verður löng, verðum vonandi búin um áttaleytið því að minns þarf að næra sig og koma sér  í læri stuð. planið er semsagt þetta för kvellan, stærðfræði djöfuls heimadæmi (sem Anna Þóra er BÚIN með) og svo vonandi smá lærdómur meiri í efnafræði, svo amðaur sé undirbúinn fyrir næsta próf sem er á þriðjudaginn. Á´mánudaginn þyrfti ég samt að vera búin með enskubókina svo ég skíti ekki endanlega á mig í engilsaxneskunni..... ARG, my life, so complicated! Á svona stundum langar mig til þess að vera vísitölu húsmóður á sjötta áratugnum. Oh honey, are you home týpan. Þar sem að lífið snérist um að að elda þrífa og halda bókaklúbba (ég veit, súrrealísk hugmynd um konur sem er engann vegin í takt við raunveruleikann....) Eða þá eitthvað af þessum gúmbösum sem nenna ekki að vera í skóla, búa á hótel mömmu (þið sem eruð vælandi yfir því að foreldrar ykkar séuð svo leiðinleg... reynið að búa á heimavist 5 daga vikunnar.....) og vera skítsama um að vera á mætingarsamningi...... (Ah, næs að vera í milljón einingum, þá kemst maður upp með mun meira skróp.....) jamm, ég er búin í pásunni minn sem ég gaf mér (til hamingju Þóra.... þakka þér fyrir Þóra) bless bless og góða nótt

Posted at 09:43 am by Þóra Geirlaug
núnú, bara partý(2)  

Tuesday, November 02, 2004
jamm jamm og jæja

jább, margt og mikið búið að ske. Síðustu vikur höfum við vinkonurnar verið innilokaðar í kjallarnum hjá Þórhildi, og viti menn, ætli það hafi ekki bara borið einhver árangur. Amk var það eitthvað sem að dómnefndinni líkaði við því að við unnum, ótrúlegt en satt! Í öðru sæti var hljómsveitin Fuck it to death, og svo var busabandið með Þór og Hinrik sem ég man ekki hvað heitir (eða réttara sagt, kann ekki að skrifa það) besti gítarleikarinn var Hinrik, besti trommarinn Gaui í Fuck it to death, besti bassaleikarinn var Vésteinn og svo var minns sjálf valin efnilegasti söngvarinn. Satt best að segja hef ég ekki snert jörðina síðan á föstudagskvöld, ég skildi loksins hvernig þessum fegurðardrottningum líður..... En, á laugardaginn, þá var haldið í sveitasæluna, og svo um kvöldið á árshátíð með settinu. dansaði held ég undan mér lappirnar þar sem að faðir minn er ofvirkur dansari og minnir frekar á þolfimikappa heldur en bónda á sextugsaldri á árshátíð. en, nú er planið að fara að sofa, þreytt..... bleble

Posted at 12:41 am by Þóra Geirlaug
núnú, bara partý(1)  

Thursday, October 28, 2004
tæfurokkkkkkkkk

jíha, fiðrungur í maganum og jollý joll. sit núna inní sal og læt mér leiðast á meðan að misskemmtilegir busa´r kaupa mið á ball og keppni gamanaðessu. Annars var menntamálaráðherra hérna áðan, að fara með sömu tgguna og Tómas Ingi var búin að þrælprófa. Svo náttúrurlega komu grunnskólakennarar með þann frumlega hátt á að standaf yrri utan þar sem vona er um rifrildi. Það var náttúrulega sterkur leikur að standa hérna fyrir utan þega menntamálaráðherra var hérna, sorrý, en einu áhrif sem að hún getur haft á verkfallið og kjaradeiluna eru þau að setja lög! Ráðherra er nefnilega með ríkisdæmið, sveitarfélögin sjá nebblega um ykkur. Annars nenni ég ekki að rífast, geri víst of mikið af því við busatetrin sem að búa á móti mér. Amk er "æi Þóra þegiðu" voða vinsæl setning hjá þeim. gaman að sjá að fólk þroskast lítið sem ekkert. En, ég er farina ð þykjast vera gáfuleg, svona fyrst að Úrsúla ákvað að vera barasta ekkert. Skemmtilegur dagur, svona ef maður pælir í því. Tími (próf, sem ég vissi ekki af en rúllaði samt upp af minni einskæru snilld) eyða (sem var notuð til sanssss) tími (sem var  stuttur vegna þess að framhalsskólakennarar fóru í samúðarkennslufall....) svo er ég í eyðu núna vegna þess að Úrsúla mín er ekki. svo er barasta matur og svoooooooooo saga ooooooog þá er minns búin!!!! En, nún er stefnan sett á heimspeki verkefni sem ég á að skila á morgun, og trúið mér, það verður ekkert gert þá! bleble

Posted at 12:42 pm by Þóra Geirlaug
núnú, bara partý(6)  

Monday, October 25, 2004
Þinns feitur? minns feitur....

jájá, var að koma af æfingu. Þreytt og lúin eftir erfiða helgi. Var sérlegur flutningameistari fyrir Kjartan og Slaugu. Reyndar flaut með fyndinn Þverhlíðingur, Dieterinn sjálfur. Byrjuðum þá því að fara niðrað Kaðalstöðum þar sem kom saman eðalsafn snillinga. svo var skundað á dansleik í Borgarnesi. Komumst þangað fyrir rest, það´tók reyndar tímann sinn þar sem að Snorri Þorsteinn er kelling undir stýri. Svo var barasta haldið inná hótel þar sem sveifulkóngurinn var í rífandi stuði. Svo barasta keyrðum við aftur heim (annað hvort það eða að gista hjá ömmu, og ég var nokkuð viss um að hún væri sofnuð) og ég gerði þann merka hlut að keyra í fyrsta skipti sjálf í Þverárhlíðinni. Var með tvo aðstoðarbílstjóra sem leiðbeindu mér með "hard left" "easy right" leiðibeiningum. Snillingar. En jámm  ég er farin að sofa.......

Posted at 01:37 am by Þóra Geirlaug
speak up bitches!  

Wednesday, October 06, 2004
og þegar allir er komnir undir sæng og biðja bænirnar sínar....

... þá bíð ég hér aleinn í myrkrinu eftir því að heyra þínar. Fólk er fífl, en það er náttúrulega allt annað mál. Hér sit á uppá vist, að hlusta á útgáfu Ragnheiðar Gröndal af megasar lagi. Þau ykkar sem að hafið fundið út hvað lagið heitir mega endilega koma með svörin í kommentin (athugasemdir;)) Jább, var í eðlisfræði áðan, bölvuð snilld sem að vellur uppúr Finnboga. Reyndar kom Jóhanna frönskukennari mneð skemmtilegt innskot "sona skemmtiatriði" Gaman að því, ég meira að segja skildi eitthvað, smá amk. Jábbbbb,  annars er eitt sem að fer ekkert smá í mig! Argur gargur, þar sem að ég kem úr sveit (og til að fyrirbyggja allan misskilning, JÚBBB: það er vatnssalerni í sveitum) þá er eins og að sumt fólk (nafngreining ekki inní myndinni) hafi séð appelsínugulann, þvíhöfða dverg (reyndar er til appelsínugult fólk, meira að segja hér á skaganum) þegar það fattar að ég er úr sveit! Kræsturinn, ég lenti meira að segja í smá rifrildi við stúlkukind um daginn sem neitaði því að ég væri úr sveit þar sem að ég væri ekki "sonna sveitaleg skilurru" algjör fæðingar hálfviti, hvða heldur fólk eiginlega að það að búa í sveit gangi útá, að kemba ull og strokka til skiptis?? Neibb, svona til að koma því að þá hef ég aldrei kembt ull og einu sinni tekið í strokk. En, þar sem að ég geng ekki í vaðmálspilsi og skinnskóm þá er ég ekki "sonna sveitaleg"??? Eða hvað? Ég er farin í tíma, stærðfræði 403 klikkar ekki. spurning hvaða gullkorna velta upp úr borgnesingnum núna!

Posted at 02:06 pm by Þóra Geirlaug
núnú, bara partý(19)  

so cute, so innocent.... or are they???


 

Já, powerball var á föstudaginn, og þessi mynd var semsagt tekin af okur stjórnarmeðlimum, algjörar rúsínur ;) En, jább, ég er farin að sofa, ég er þreytt og lúin......

Posted at 12:50 am by Þóra Geirlaug
núnú, bara partý(4)  

Tuesday, September 28, 2004
Ok, so here it comes

Jæja, formlegar kveðjur komnar frá frændum mínum í Ameríkunni. Sem eru í raun mun meira en frændur mínir. Já, kæru félagar ég er að tala um glæsimennin og heiðursmennina Arnar Guðjónsson ofurkynveru og yndi, og Skúla Ingiberg Þórarinsson, hönk og sexíbíst. Þeir félagar dvelja nú í Kanalandi til þess að hækka greindarvísitölu kanverja. Sem er ekkert skrýtið þar sem að þeir bera af hvað gáfur og glæsileik varðar. Skúli er það sem má telja afburðamann á öllum sviðum, hann ber höfuð og herðar yfir aðra karlmenn hér á klakanum, sem og annarsstaðar. Má til dæmis nefna að hann bræddi ófá hjörtu ungmeyja úr samstarfsskólum Vesturlands með glæsilegum töktum inná körfuboltavellinum, sem og á dansgólfum æskulýðsballa og annarra dansleikja. Skúli er semsagt afbragð annarra ungra manna, stórglæsilegur, þokkafullur mjög, svo að ungmeyjar hreinlega missa sig (sjá skýrt dæmi HÉR þar sem að síðustjórinn hefur greinilega þurft að hafa sig alla við að renna ekki úr stólnum) svo ekki sé minnst á hjartalag þessa unga manns. Annað eins hefur ekki sést, hvorki í uppsveitum Borgarfjarðar eða veldis Bush gamla. Þvílíkur öðlingur, dýravinur sem vílar ekki fyrir sér að bjóða aðstoð sína,´bæði mönnum og málleysingjum (þó reyndar hafi aðstoð hans við sundkennslu mína forðum daga í Brautartungu, ekki verið vel þegin, var það vegna fáfræði nemandans um mikilvægi þess að kunna að synda) EN, SKúli er ekki einn í veldi Bush. Hann Arnar Guðjónsson, náfrændi og vinur til margra ára er þarna líka. Arnar fór upphaflega til Kanaríkis til að trippla bolta, en fann hana Söru sína og er voða mikið þar núna. Arnar er ekki síður þokkafullur en Skúli félagi hans. Má því til stuðnings nefna þegar að Skúli féll í yfirlið vegna glæsileik Arnars, beint í kjöltu hins síðarnefnda. En, Arnar brást við þessu með fádæma yfirvegun og rólegheitum, eins og hans er von og vísa. Arnar er líka þeim hæfileika gæddur að geta gert marga hluti í einu. Þarna myndu nú einhverjir vitna í Hellisbúann og segja hann þar með vera kvenkarl, en nei kæru vinir, Arnar er holdgervingur íslenskrar karlmennsku, karlmennið sem stýfir sviðkjamma úr lófa sínum og fær sér hákarl í eftirrétt. Þetta getur Arnar, án þess þó að missa sjarmann sem að hann býr óneitanlega yfir.  EN, nú er nóg komið af gullhömrum í bili þar sem ég veit að þrátt fyrir að vera svona æðislegir og bestastir ;) að þá eru þeir líka yfirmáta hógværir, blessaðir öðlingarnir.
Máli mínu til sönnunar er hér mynd af hinum yfirmáta kynþokkafulla sexíbísti, Skúla:


Með saknaðarkveðjum úr herbergi 110 á heimavist FVA

Posted at 01:53 pm by Þóra Geirlaug
núnú, bara partý(1)  

Monday, September 27, 2004
Lady's and gentelmen

Ákvað að henda inn mynd af Jukkfríði, eða Jukku Sukku eins og við köllum hana sem þekkjum hana
blog image

Posted at 06:32 pm by Þóra Geirlaug
núnú, bara partý(1)  

Next Page

   



If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




rss feed