Jæja, formlegar kveðjur komnar frá frændum mínum í Ameríkunni. Sem eru í raun mun meira en frændur mínir. Já, kæru félagar ég er að tala um glæsimennin og heiðursmennina Arnar Guðjónsson ofurkynveru og yndi, og Skúla Ingiberg Þórarinsson, hönk og sexíbíst. Þeir félagar dvelja nú í Kanalandi til þess að hækka greindarvísitölu kanverja. Sem er ekkert skrýtið þar sem að þeir bera af hvað gáfur og glæsileik varðar. Skúli er það sem má telja afburðamann á öllum sviðum, hann ber höfuð og herðar yfir aðra karlmenn hér á klakanum, sem og annarsstaðar. Má til dæmis nefna að hann bræddi ófá hjörtu ungmeyja úr samstarfsskólum Vesturlands með glæsilegum töktum inná körfuboltavellinum, sem og á dansgólfum æskulýðsballa og annarra dansleikja. Skúli er semsagt afbragð annarra ungra manna, stórglæsilegur, þokkafullur mjög, svo að ungmeyjar hreinlega missa sig (sjá skýrt dæmi
HÉR þar sem að síðustjórinn hefur greinilega þurft að hafa sig alla við að renna ekki úr stólnum) svo ekki sé minnst á hjartalag þessa unga manns. Annað eins hefur ekki sést, hvorki í uppsveitum Borgarfjarðar eða veldis Bush gamla. Þvílíkur öðlingur, dýravinur sem vílar ekki fyrir sér að bjóða aðstoð sína,´bæði mönnum og málleysingjum (þó reyndar hafi aðstoð hans við sundkennslu mína forðum daga í Brautartungu, ekki verið vel þegin, var það vegna fáfræði nemandans um mikilvægi þess að kunna að synda) EN, SKúli er ekki einn í veldi Bush. Hann Arnar Guðjónsson, náfrændi og vinur til margra ára er þarna líka. Arnar fór upphaflega til Kanaríkis til að trippla bolta, en fann hana Söru sína og er voða mikið þar núna. Arnar er ekki síður þokkafullur en Skúli félagi hans. Má því til stuðnings nefna þegar að Skúli féll í yfirlið vegna glæsileik Arnars, beint í kjöltu hins síðarnefnda. En, Arnar brást við þessu með fádæma yfirvegun og rólegheitum, eins og hans er von og vísa. Arnar er líka þeim hæfileika gæddur að geta gert marga hluti í einu. Þarna myndu nú einhverjir vitna í Hellisbúann og segja hann þar með vera kvenkarl, en nei kæru vinir, Arnar er holdgervingur íslenskrar karlmennsku, karlmennið sem stýfir sviðkjamma úr lófa sínum og fær sér hákarl í eftirrétt. Þetta getur Arnar, án þess þó að missa sjarmann sem að hann býr óneitanlega yfir. EN, nú er nóg komið af gullhömrum í bili þar sem ég veit að þrátt fyrir að vera svona æðislegir og bestastir ;) að þá eru þeir líka yfirmáta hógværir, blessaðir öðlingarnir.
Máli mínu til sönnunar er hér mynd af hinum yfirmáta kynþokkafulla sexíbísti, Skúla:

Með saknaðarkveðjum úr herbergi 110 á heimavist FVA