Þinns feitur? minns feitur....
jájá, var að koma af æfingu. Þreytt og lúin eftir erfiða helgi. Var sérlegur flutningameistari fyrir Kjartan og Slaugu. Reyndar flaut með fyndinn Þverhlíðingur, Dieterinn sjálfur. Byrjuðum þá því að fara niðrað Kaðalstöðum þar sem kom saman eðalsafn snillinga. svo var skundað á dansleik í Borgarnesi. Komumst þangað fyrir rest, það´tók reyndar tímann sinn þar sem að Snorri Þorsteinn er kelling undir stýri. Svo var barasta haldið inná hótel þar sem sveifulkóngurinn var í rífandi stuði. Svo barasta keyrðum við aftur heim (annað hvort það eða að gista hjá ömmu, og ég var nokkuð viss um að hún væri sofnuð) og ég gerði þann merka hlut að keyra í fyrsta skipti sjálf í Þverárhlíðinni. Var með tvo aðstoðarbílstjóra sem leiðbeindu mér með "hard left" "easy right" leiðibeiningum. Snillingar. En jámm ég er farin að sofa.......
Posted at 01:37 am by Þóra Geirlaug