Monday, November 08, 2004
gefumst ekki uppp þó móti blási....

jámm, þetta verður stutt og laggott, þabarra allt að verra kreisí *pirrandi gelgjurödd* morfís á föstudaginn, Byssan úr Versló kominn til að gera ræðusnillinga úr okkur..... sjáum hvernig það fer. Amk er það föstudagurinn 12. uppí Borgarholtsskóla, umræðuefnið er mistök, fva með. en, skolinn er að kæfa mann hérna, þýskupróf eftir alltof stuttan tíma, efnafræðipróf eftir hádegið, skoðun fyrir bílinn klukkan þrjú (búin í prófi 15:20) og svo eru verkefni, heimadæmi, ritgerðir og reikningsdjöflar sem þarf að borga. sé reyndar fram á það að eftir fjögur í dag verði mögleiki á að borga slatta af reikningum ef að samúel engill leguur inná okkur þeas. það tekur ábyggilega um hálftíma, þá kl 1700 mun vera morfís æfing og Þóra Geirlaug búin að vera með ritstíflu síðan hún fór að ryena að skrifa ræðu í gær. hef reyndar ekki hugmynd um hvað æfingin verður löng, verðum vonandi búin um áttaleytið því að minns þarf að næra sig og koma sér  í læri stuð. planið er semsagt þetta för kvellan, stærðfræði djöfuls heimadæmi (sem Anna Þóra er BÚIN með) og svo vonandi smá lærdómur meiri í efnafræði, svo amðaur sé undirbúinn fyrir næsta próf sem er á þriðjudaginn. Á´mánudaginn þyrfti ég samt að vera búin með enskubókina svo ég skíti ekki endanlega á mig í engilsaxneskunni..... ARG, my life, so complicated! Á svona stundum langar mig til þess að vera vísitölu húsmóður á sjötta áratugnum. Oh honey, are you home týpan. Þar sem að lífið snérist um að að elda þrífa og halda bókaklúbba (ég veit, súrrealísk hugmynd um konur sem er engann vegin í takt við raunveruleikann....) Eða þá eitthvað af þessum gúmbösum sem nenna ekki að vera í skóla, búa á hótel mömmu (þið sem eruð vælandi yfir því að foreldrar ykkar séuð svo leiðinleg... reynið að búa á heimavist 5 daga vikunnar.....) og vera skítsama um að vera á mætingarsamningi...... (Ah, næs að vera í milljón einingum, þá kemst maður upp með mun meira skróp.....) jamm, ég er búin í pásunni minn sem ég gaf mér (til hamingju Þóra.... þakka þér fyrir Þóra) bless bless og góða nótt

Posted at 09:43 am by Þóra Geirlaug

Begga Hólmari
November 11, 2004   02:13 PM PST
 
Neih Siggi gæi bara hérna ;) hehe. En Þóra ég hef bara eitt að segja við þig um öll þessi leiðindi í lífi þínu. ,, Life sucks, then you die" :) Þannig er það bara, þannig að það er óþarfi að taka lífinu alvarlega :) Taktu því bara rólega, þetta gengur allt á endanum
Sjáumst elzkan...
Siggi
November 9, 2004   08:03 PM PST
 
Hefði verið fínt að vera húsmóðir á 6. áratugnum, bara dunda sér við að ryksuga í náttslopp og með sjerríglas í hendinni.
„Ég er kominn heim elskan. Hva, ætlaru ekki að klæða þig?“
„Nei, það tekur því ekki, það er komið kvöld...“

En neinei.
 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments




Previous Entry Home Next Entry

   



If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




rss feed