Monday, September 27, 2004
afmæli

í dag varð  ég átján ára gömul, stórmerkilegur atburður það.  Fór í sumarbústað með stelpunum i gær til að halda upp á áfangann. spes partý, endaði á rúntinum í bgn með beggunum. stórmerkilegur atburður það. Annars var ég að koma uppá skaga, þreytt og lúin, það tekur sko á að vera gömul. Kom með Jukkfríði sem kemur til með að búa hér í vetur. sKemmtilegur karakter það. Annars ég ekki í neinu stuði núna, ekkert gaman.við heyrumst seinna. ..... Já og ég skrifa eitthvað um ykkur skúla þegar þið óskið mér formlega til hamingju með afmælið arnar......

Posted at 01:07 am by Þóra Geirlaug
núnú, bara partý(1)  

Monday, September 20, 2004
goldfinger...

Jámm, goldfingar var að klárast, alveg hvað bond er bestur. Er núna að horfa á einhverja aglýsingu um lélega bandaríska bíómynd. Annars var dagurinn bara tekinn í lærdóm, og mikið af honum. Kláraði efnafræðina, og auðvitað skýrsluna í eðlisfræðinni (þó ég sé ekkert viss um að hún sé rétt) heimadæmi II ( sem ég er reyndar nokkuð viss um að sé amk 80% rétt) og svo að sjálfsögðu Educating Rita sem var nokkuð sérstök, svo ekki sé meira sagt. Þannig að nú er stefnan sett á rúmið mitt og að fara að reyna að sofa eitthvað í hausinn á sér. Jább, og það er frí í sálfræði á morgun = ekkert próf :D Sem er bara gott og blessað, en, jámmmmm góða nótt apakettirnir mínir ;)

Posted at 12:59 am by Þóra Geirlaug
núnú, bara partý(2)  

Saturday, September 18, 2004
where have all the flowers gone....

söng Marlene Dietrich hér um árið og við stöllur í þýs 303 vorum einmitt að gera verkefni um hana sem við skiluðum með glæsibrag á föstudags morgun, eftir erfitt fimmtudagskvöld á þýðingarvélum, útklippanir og álímingar. En, samt töff. Svo var bara brunað heim í heiðardalinn eftir smá snúninga á skaganum eftir skóla á föstudaginn.  Svo var stefnan sett á hinn alræmda skemmtistað Brúarás þar sem að hin síunga hljómsveit Stuðbandalagið lék fyrir dansi fram á rauða nótt. Voru þar fremstir í flokki Indriði æskulýðsfrömuður og tottenham-maður (þetta skrifaði ég nú bara fyrir hann pabba minn,enda gall harður stuðningsmaður the spurs...) og Guðjón nokkur Guðmundsson, en hans helstu afrek eru að hafa kennt mér björgunarsund þegar ég stundaði nám við hina.... merkilegu... tjah, áhugaverðu menntastofnun Kleppjárnsreykajskóla. Ballið var nú bara svona lala, ekki rífandi stemming, engin leiðindi samt, en ekkert algjört blast of the century.... stóri bróðir kom meira að segja á ball með sína ektakvinnu. Við systkinin sýndum þessa líka stórfenglegu takta á dansgólfinu, alveg mössuðum þetta! En, svo hefur laugardagurinn mest megnis farið í lærdóm og í það að reyna að spilla bróðursyni mínum, sem er (ef ég hef ekki minnst á það) algjör snillingur. Kláraði sálfræðina og er lang komin með eðlisfræðina, svo verður enskan tekin með trukki á morgun.... En, ég ætla að reyna að klára kakóið mitt, sem er alveg best í heimi, og fara svo að leggjast til hvílu... kveðja, á þjóðlegum nótum frá heimasætunni á Norðurreykjum

Posted at 11:57 pm by Þóra Geirlaug
speak up bitches!  

Tuesday, September 14, 2004
Herradeild PÓ er málið

Jámm og jæja, ég get svo svarið það, sagði kerling og skellti sér á lær. Einmitt í þessum töluðu orðum er undirrituð í pásu frá sálfræðispurningum sem eru einstaklega leiðinlegar. Til að bæta þetta upp fann ég á netinu fjögur lög með Herradeild PÓ. Mér finnst nú The Weight alveg snilldar lag, og viti menn, þeir klúðra því ekki. Sérstaklega finnst mér Pétur Óðins vera að gera góða hluti sem söngvari.... Svona er nú veröldin skemmtileg. Annars er voða lítið að frétta, kaffihúsakvöld á morgun, fyrsta kaffihúsakvöld vetrarins... úff spenningur, samt ekki, alveg snillingar sem eru að veita þessu forstöðu. Busarnir eiga víst að vera með atriðin og vonandi verður það bara sniðugt. Annars er það búinn að vera draumur hjá mér í alltof langan tíma að fara með atriði á kaffihúsakvöld. Ég veit, kannski eitt af fáu sem ég á eftir að prófa í þessum skóla, en só wott! Prófa það kannski næst. En, minns ætlar að halda áfram að læra, vegna þess að það er svo gaman....

Posted at 08:13 pm by Þóra Geirlaug
núnú, bara partý(1)  

Monday, September 06, 2004
sorgarfréttir

hin kanæinan hennar eyrúnar sem hún tók að sér, Snúlla, lést ur sorg í dag. Ólafur bróðir hennar átti hana, en fyrir nokkru tók Eyrún hana að sér. Minningartónleikar verða í kjallara Merkurteigs 4 um klukkan 8 í kvöld. Þeir sem vildu minnast hennar eru hjartanlega velkomnir.

Posted at 07:22 pm by Þóra Geirlaug
núnú, bara partý(2)  

Orgía í maurabúi

jámm, ég er þreytt og pirruð, en myndi ég svíkja mínu dyggu lesendur, ónei ónei!!! Ég er semsagt fyrst og fremst pirruð á þessum helvítis síma! Síminn minn tók semsagt uppá því að neita bara að kveikja á sér áðan, takkinn sem að kveikir í honum er bara brotinn, hann hleður sig og allt, en bara neitar að kveikja á sér! ja for helvede jeppesen. En, málið er semsagt að fara niðrí símabúð á morgun og tékka á þessu, minnir nú að ábyrgðin sé ennþá í gildi. Jammsl, var reyndar að koma úr bænum með GÖMLU vistarkrökkunum. Fórum saman á Fame í smáralind (eruði geim í  feim...) varð reyndar ekki fyrir vonbrigðum þar sem vonirnar voru ekkert miklar. Sveppi var bara fyndinn vegna þess að hann var sveppi, Jónsi var bara sætur, en fékk ekkert að njóta sín, og auðvitað stóð Gummi frændi sig eins og hetja. Satt best að segja voru það bara hann og Álfrún sem voru að leika eitthvað. Húsið er alls ekki gott sem leikhús, ekki séns á að gera almennilegt myrkur og hljóðin frá veitingastöðunum í kring voru að gera mig brjálaða! ARG en, tónlistin er flott, þó svo að söngurinn væri ekki upp á marga fiska. Jónsi er soldið svona útúr kú því hann ber af í söngnum. Ester Thalía.... hmmm, hún er bara alltof lík persónunni sem hún leikur til að maður geti tekið hana trúanlega.  Syngur ekki nógu vel til að eiga það skilið að syngja FAME.  En, hvað með það. Maður skellir ´sér  bara á hárið í góðu geimi, framboð um eihverja sem vilja koma með mér eru velkomin.... en, ég er farin að sofa, gn :P

Posted at 01:41 am by Þóra Geirlaug
núnú, bara partý(10)  

Wednesday, September 01, 2004
she's a broken puzzle.....

Jámm, ég er haldin skólaleiðia. Nenni engan vegin að hanga í skóla til að meðtaka fróðleik lengur. EFst á óskalistanum er að fara að gera eitthvað af viti. Svo byrjaði ég nú stæ 403 í dag. Held að eina von mín um að ná sé sú að bókinni minni fylgi eitthvað stærðfræðivit. Þetta er nebblega gamla bókin hans jolla. sniðugt á Íslandi! Annars tók ég smá rúnt áðan, var barasta að koma inn. Keyrði semsagt niðri hjá HB eða þar og sé ég ekki bara einhverja smá þúst á götunni, þegar ég kom nær sé ég alveg ljótasta kött sem ég hef nokkurn tíman séð! Tættur og ógeðslegur. Svo allt í einu var eins og það hefði orðið sprenging og bara billjón kettur ruddust yfir götuna og eitthvert milli húsa. EKKI sniðugt, mér allvegana brá alveg óstjórnlega.
Busaballið verður svo á föstudaginn og ég held að það sé nú bara almennt góð stemmning fyrir því. Skemmtilegt..... En, ég held að málið sé að fara að lesa pínu í Chemistry, General, Organic and Biological.... Við hittumst heil.........

Posted at 12:45 am by Þóra Geirlaug
núnú, bara partý(3)  

Monday, August 30, 2004
Oh, do shut up will you

Þeir sem að til þekkja vita væntanlega að þetta er setning úr A fish called Wanda, algjör helber snilld! annars er lítið að frétta. Kom frekar seint út á skaga í gær, var nebblega að passa fyrir unnar gamla bróður minn. Skemmtilegt að gera svona öðru hvoru. Svoer bara skóli, skóli og meiri skóli. Reyndar busadagurinn á föstudag. Ball með skímó um kvöldið, og jollýjoll

Posted at 06:17 pm by Þóra Geirlaug
núnú, bara partý(3)  

Wednesday, August 25, 2004
Neighbours...........

Neighbours......... evríboddí níds gúdd neijbörs. Já, þeir voru að klárast, Edwina er engin smá tík maður, alveg svoleiðis. Fyrsti svona skóla, skóladagurinn var í dag. Skemmtilegt maður. Við Eyrún vorum líka að pimpast á netinu. stöð maður. Reyndar ekki svo mikið stuð þar sem að hún var að missa ástkæru kanínuna sína, hana Mjöll, hún náði bara að verða níu ára þessi elska. Rúnar heldur því fram að hún hafi þjáðst af lífsleiða, en það var víst ellin sem dró hana yfir móðuna miklu. blessuð sé minning Mjallar, við sem þekktum hana vitum að heimurinn verður ekki samur eftir fráfall hennar. Já, næstu dagar verða erfiðir, en life must go on. jæja, minningarathöfn um Mjöll verður haldin á Kirkjubraut/ Skólabraut eftir klukkan níu í kvöld......
   En, annars var ég að finna alveg brilljant nafn á syni þessa lands, Áslákur Randver, fallegt og þjóðlegt. Hér með auglýsi ég eftir nýbökuðum foreldrum sveinbarna sem gætu hugsað sér að láta synin sína bera þessi glæstu nöfn. Ef að þau henta ekki, þá eru nöfnin Ljótur, Friðbert, Öndverður, Kleppjárn og svo síðast en ekki síst Rúnar. Við hittumst heil *klikk*

Posted at 07:23 pm by Þóra Geirlaug
núnú, bara partý(6)  

pælings smælings

já, fólk er fífl, þetta samtal átti sér stað núna áðan.
- hey, ef maður tekur einn staf úr kjartan, þá er komið kartan
- nei, maður þarf að takann joðið líka.

Ég tek það fram að ég átti fyrri setninguna...... bara til að hafa það á hreinu. Annars er bara stuð á mér, flestir kennarar heilir á geði og skemmtilegheit. Annars lenti ég í skrýtnum aðstæðum áðan, hringdi einhver kella frá dv, eitthvaðað spurja mig um mjög persónulega hluti, foreldra og svoleiðis. alveg merkilegt. en ég er farin að sofa...... síjú

Posted at 01:05 am by Þóra Geirlaug
núnú, bara partý(5)  

Previous Page Next Page

   



If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




rss feed