Entry: og þegar allir er komnir undir sæng og biðja bænirnar sínar.... Wednesday, October 06, 2004



... þá bíð ég hér aleinn í myrkrinu eftir því að heyra þínar. Fólk er fífl, en það er náttúrulega allt annað mál. Hér sit á uppá vist, að hlusta á útgáfu Ragnheiðar Gröndal af megasar lagi. Þau ykkar sem að hafið fundið út hvað lagið heitir mega endilega koma með svörin í kommentin (athugasemdir;)) Jább, var í eðlisfræði áðan, bölvuð snilld sem að vellur uppúr Finnboga. Reyndar kom Jóhanna frönskukennari mneð skemmtilegt innskot "sona skemmtiatriði" Gaman að því, ég meira að segja skildi eitthvað, smá amk. Jábbbbb,  annars er eitt sem að fer ekkert smá í mig! Argur gargur, þar sem að ég kem úr sveit (og til að fyrirbyggja allan misskilning, JÚBBB: það er vatnssalerni í sveitum) þá er eins og að sumt fólk (nafngreining ekki inní myndinni) hafi séð appelsínugulann, þvíhöfða dverg (reyndar er til appelsínugult fólk, meira að segja hér á skaganum) þegar það fattar að ég er úr sveit! Kræsturinn, ég lenti meira að segja í smá rifrildi við stúlkukind um daginn sem neitaði því að ég væri úr sveit þar sem að ég væri ekki "sonna sveitaleg skilurru" algjör fæðingar hálfviti, hvða heldur fólk eiginlega að það að búa í sveit gangi útá, að kemba ull og strokka til skiptis?? Neibb, svona til að koma því að þá hef ég aldrei kembt ull og einu sinni tekið í strokk. En, þar sem að ég geng ekki í vaðmálspilsi og skinnskóm þá er ég ekki "sonna sveitaleg"??? Eða hvað? Ég er farin í tíma, stærðfræði 403 klikkar ekki. spurning hvaða gullkorna velta upp úr borgnesingnum núna!

   19 comments

Bjarki dudenheimer.
October 26, 2004   10:02 PM PDT
 
minni bara a mitt fyrra commennt... megas er bara mjög mikið drasl þegar hann er að syngja.
Máni
October 26, 2004   05:49 PM PDT
 
Hr. Name gleymdi að gera gæsalappir utan um vefslóðina.
Þóra Geirlaug
October 25, 2004   12:31 AM PDT
 
Þetta fólk sem er búið að tjá sig um megas hérna á síðunni er bara fólk sem veit af þessum diski......
b-dude
October 24, 2004   10:52 PM PDT
 
megas kann ekki að syngja og er leiðinlegur, en hann kann að semja lög og texta sem eru ekki best til fallinn að hann flytji. ef þið viljið heyra lög hanns njóta sín að tjekkið þá endilega á disk sem heitir megasarlög. þar eru lög eftir hann í búningi íslenskra sveita sem er oft mjög úber clive! samt megas og súkkat segir meira en margt ;)
Þóra Geirlaug
October 23, 2004   02:31 PM PDT
 
megasar sjálfs meinaru.... :D
Ranka
October 22, 2004   11:03 PM PDT
 
Þú veist að þetta lag er betra í flutningi Megasar sjálfar.
Kv frá danaveldi.
Slauga jor rúmmeit
October 20, 2004   06:24 PM PDT
 
Þú bíður (allavegana eftir mér)
og það er sama í hvernig fötum þú ert, sveitamaðurinn býr alltaf í þér!!!
Bjarki dude
October 20, 2004   04:12 PM PDT
 
partý á rassgötu 3 við heitalæk á laugardaginn, pílukast og ælukast sem og stórskemmtilegir vinningar.
Beggan
October 16, 2004   04:39 PM PDT
 
Annað Þóra, hvernig væri að fá Vini vors og blóma til þess að spila á ballinu 29. okt :)
Beggan
October 16, 2004   04:29 PM PDT
 
Þóra, ég skil hvað þú meinar. Líka eins og malbiksbörnin halda í öllum sveitum séu beljur, þannig að ef mar er í sveit þá er mar að mjólka...dah þannig er það nú bara ekki.... :)
kem að heimsækja þig soon sveitastelpan mín ;) svo kem ég kannski bara aftur til ykkar på Skagen eftir jól....
Kári Rafn
October 13, 2004   09:43 PM PDT
 
Einnig er þeim skylt að taka í nefið og þurrka svo því sem lekur í ermina á lopapeysunni. Sakar ekki heldur ef fjósalykt fyllir vit þeirra er nálgast sveitamanninn/konuna.
Bjarki dude
October 12, 2004   04:52 PM PDT
 
gúmmítúttur eru ekkert á við svona klassísk stígvél :) en samt eru selskinnsskór algjerlega málið :)
Máni
October 11, 2004   12:30 AM PDT
 
Gúmmítúttur fást aðallega í kaupfélagi borgfirðinga.
Gunnar - Gungun
October 10, 2004   08:09 PM PDT
 
Hvaða gúmmítúttudjók ? Hefuru aldrei átt gúmmítúttur Bjarki ?
tsssss =) lélegt.

Annars fást gúmmítúttur í alvörunni í Axelsbúð =)
Bjarki dude
October 10, 2004   02:36 PM PDT
 
sá sem á nú þennan gúmmítúttu djók heitir guðjón þór grjetarsson. hann er alveg the túuttermaster (ekki stela þessu )
Gunnar - Gungun
October 7, 2004   08:48 PM PDT
 
Nákvæmlega! Taktu Jóhannes þér til fyrirmyndar ;D
Gúmmítúttur fást í Axelsbúð ;)
Jóhannes
October 7, 2004   06:18 PM PDT
 
Mér finnst þú satt að segja ekki í nógu miklum tengslum við uppruna þinn. Það er skylda hvers alvöru sveitamanns að gangi í lopapeysu og gúmmískóm og kveða rímur í frístundum. Þú ert bara ekki alminnileg sveitamanneskja og er ekki að undra að fólk líti ekki á þig sem slíka
Þóra Geirlaug
October 7, 2004   03:28 PM PDT
 
.... er ég fyrir löngu búin að gleyma. Til hamingju Katrín! Sko, sveitafólkið klikkar ekki!
Kata libbufan
October 6, 2004   04:12 PM PDT
 
"Heilsaðu öllum heima, sem þú heldur að gangist við mér, barnatrúnni..........."

Þú bíður hedder det!
...og það er kúl að búa í sveit!!

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments