|
jább, margt og mikið búið að ske. Síðustu vikur höfum við vinkonurnar verið innilokaðar í kjallarnum hjá Þórhildi, og viti menn, ætli það hafi ekki bara borið einhver árangur. Amk var það eitthvað sem að dómnefndinni líkaði við því að við unnum, ótrúlegt en satt! Í öðru sæti var hljómsveitin Fuck it to death, og svo var busabandið með Þór og Hinrik sem ég man ekki hvað heitir (eða réttara sagt, kann ekki að skrifa það) besti gítarleikarinn var Hinrik, besti trommarinn Gaui í Fuck it to death, besti bassaleikarinn var Vésteinn og svo var minns sjálf valin efnilegasti söngvarinn. Satt best að segja hef ég ekki snert jörðina síðan á föstudagskvöld, ég skildi loksins hvernig þessum fegurðardrottningum líður..... En, á laugardaginn, þá var haldið í sveitasæluna, og svo um kvöldið á árshátíð með settinu. dansaði held ég undan mér lappirnar þar sem að faðir minn er ofvirkur dansari og minnir frekar á þolfimikappa heldur en bónda á sextugsaldri á árshátíð. en, nú er planið að fara að sofa, þreytt..... bleble
|