|
jámm, þetta verður stutt og laggott, þabarra allt að verra kreisí *pirrandi gelgjurödd* morfís á föstudaginn, Byssan úr Versló kominn til að gera ræðusnillinga úr okkur..... sjáum hvernig það fer. Amk er það föstudagurinn 12. uppí Borgarholtsskóla, umræðuefnið er mistök, fva með. en, skolinn er að kæfa mann hérna, þýskupróf eftir alltof stuttan tíma, efnafræðipróf eftir hádegið, skoðun fyrir bílinn klukkan þrjú (búin í prófi 15:20) og svo eru verkefni, heimadæmi, ritgerðir og reikningsdjöflar sem þarf að borga. sé reyndar fram á það að eftir fjögur í dag verði mögleiki á að borga slatta af reikningum ef að samúel engill leguur inná okkur þeas. það tekur ábyggilega um hálftíma, þá kl 1700 mun vera morfís æfing og Þóra Geirlaug búin að vera með ritstíflu síðan hún fór að ryena að skrifa ræðu í gær. hef reyndar ekki hugmynd um hvað æfingin verður löng, verðum vonandi búin um áttaleytið því að minns þarf að næra sig og koma sér í læri stuð. planið er semsagt þetta för kvellan, stærðfræði djöfuls heimadæmi (sem Anna Þóra er BÚIN með) og svo vonandi smá lærdómur meiri í efnafræði, svo amðaur sé undirbúinn fyrir næsta próf sem er á þriðjudaginn. Á´mánudaginn þyrfti ég samt að vera búin með enskubókina svo ég skíti ekki endanlega á mig í engilsaxneskunni..... ARG, my life, so complicated! Á svona stundum langar mig til þess að vera vísitölu húsmóður á sjötta áratugnum. Oh honey, are you home týpan. Þar sem að lífið snérist um að að elda þrífa og halda bókaklúbba (ég veit, súrrealísk hugmynd um konur sem er engann vegin í takt við raunveruleikann....) Eða þá eitthvað af þessum gúmbösum sem nenna ekki að vera í skóla, búa á hótel mömmu (þið sem eruð vælandi yfir því að foreldrar ykkar séuð svo leiðinleg... reynið að búa á heimavist 5 daga vikunnar.....) og vera skítsama um að vera á mætingarsamningi...... (Ah, næs að vera í milljón einingum, þá kemst maður upp með mun meira skróp.....) jamm, ég er búin í pásunni minn sem ég gaf mér (til hamingju Þóra.... þakka þér fyrir Þóra) bless bless og góða nótt
|